|
Við bjóðum upp á hýsingu fyrir hverskonar lausnir: Vefi hvort sem er sístæða eða kvika (e. static / dynamic), tölvupóst og gagnagrunna. Ef þú hefur sérþarfir þá skaltu ekki hika við að hafa samband og sjá hvort við getum ekki leyst þær. Öll okkar þjónusta í þessu sambandi er sett upp með tilliti til öryggis rekstrar og gagna. Vélbúnaður sem staðsettur er í kældum vélasal með aðgengi aðeins fyrir viðkomandi starfsfólk og er vaktaður með myndavélabúnaði, er uppfærður reglulega með þrautreyndum íhlutum til að minnka líkur á bilunum. Sama má segja um hugbúnað sem byggir allur á reyndum útgáfum frjálsra kerfa sem valin eru sérstaklega með stöðugleika og öryggi að sjónarmiði. Öll uppsetning á þjónustum hugbúnaðar er þannig úr garði gerð að uppsetning viðhald og notkun á vefumsjónarkerfum þeim sem við bjóðum sé sem einföldust. Í stuttu máli sagt, notendavænt án þess að fórna öryggi. Því miður hafa notendur slíkra kerfa rekist á að það er ekki algilt um þá hýsingu sem er í boði almennt. Endilega kynntu þér betur það sem við bjóðum, hér á vefnum eða með því að hafa samband við okkur. Við munum gera okkar besta til að þjóna þínum þörfum! |
