Notendaleiðbeiningar

Í vefumsjónarkerfinu er hægt að hafa aðgangsstýringu svo notendur hafa mismunandi aðgang eftir því hvernig þeir eru skráðir inn í kerfið.

Tegundir notenda
Í grófum dráttum skiptast notendur í þessa hópa:

1. Almenna notendur (Allir sem heimsækja síðuna).
2. Skráðir notendur (Þeir sem hafa skráð sig sem notendur).
3. Höfunda (Getur búið til efni)
3. Ritstjóra (Getur birt efni)
4. Kerfisstjóra (Kemst yfir flesta þætti kerfisins)
5. Yfirkerfisstjóra (Hugsa sér!)

1. Almennir notendur (Public)
Geta skoðað alla opna hluta vefjarins.
Geta tekið þátt í könnunum.

2. Skráðir notendur (Registered)
Sama og Almennir notendur en geta líka komist á lokaðar síður.
Hægt að senda fjöldapóst á þennan hóp.

3. Höfundar (Editor)
Sama og að ofan.
Geta að auki búið til efni (fréttir, myndir o.s.frv.) en ekki gefið það út.

4. Ritstjórar (Manager)
Sama og 2.
Geta að auki búið til efni s.s. fréttir, kannanir, sett inn myndir
Þegar ritstjóri er skráður inn birtist “Breyta“ hnappur hjá þeim hlutum sem hann getur breytt.
Getur sett hluti í ruslið en ekki eytt þeim endanlega.

5. Kerfisstjóri (Administrator)
Getur allt sem að ofan er greint.
Getur að auki skráð nýja notendur og breytt þeim.
Getur búið til valmyndir og breytt þeim.
Getur búið til nýjar kannanir.
Getur eytt hlutum endanlega.

6. Yfirkerfisstjóri (Super Administrator)
Kemst yfir alla þætti kerfisins.

1. Skráðu þig inn í kerfið. (www.lén.is/administrator)

2. Á upphafssíðu er smellt á Add New Content. Þá kemur upp síða sem heitir Content Item:New.

3. Settu inn fyrirsögn í Title og undirfyrirsögn í Title alias ef það er notað í útlitinu.

4. Gakktu frá efra textaboxi (það sem birtist á forsíðu eða þar til gerðri efnissíðu):
a) Settu inn inngangstextann.
b) Smelltu í neðra textaboxið og settu inn afganginn af fréttinni.

5. Gerðu bendilinn virkan vinstra megin við textann og smelltu á Image ­táknið í neðstu myndaröðinni.

6. Upp kemur Image Manager ­gluggi.
a) Myndin er til staðar í myndasafninu.
Smelltu í viðeigandi möppu og svo á viðeigandi mynd.
b)Myndin er ekki til staðar í myndasafninu.
Smeltu á Upload táknið til hægri fyrir miðjum ramma. Þá kemur upp Upload gluggi. Smelltu á Browse og findu myndina á harða disknum á tölvunni þinni. Smeltu á Upload.

7. Smelltu á Insert flipann. (Áður en það er gert má gera ýmsar stillingar, svo sem velja staðsetningu undir Align, stærð undir Dimensions og fl.).

8. Endurtaktu ferlið ef fleiri myndir eiga að vera á síðunni.

9. Smelltu á Saveefst til hægri. (Áður en það er gert má gera ýmsar stillingar í Publishing fliipanum til hægri. Haka við Show on Front Page ef það á við. Haka frá Puplished ef ekki er tímabært að birta efnið. Stilla hvenær og hve lengi efnið á að birtast.

ATH. sé verið að skrifa lengri greinar er snjallt að smella á Apply efst til hægri með nokkru millibili. Þá vistast það sem komið er.

 

1. Farðu í kerfishlutann www.lén.is/administrator og skráðu þig inn.

2. Veldu Media Manager.

3. Smelltu á möppuna Stories.

4. Farðu á þann stað í myndasafninu þar sem þú vilt búa til nýja möppu.

5. Skrifaðu heiti nýju möppunnar í svæðið Create directory.

6. Smelltu á Create hnappinn.

ATH! Ekki nota séríslenska stafi né bil í heiti möppunnar.
Notaðu under_score í stað bila.

 

Þegar verið er að vinna við efni síðunnar, skrifa nýtt efni eða breyta, þá læsir kerfið viðkomandi síðu svo enginn annar umsjónarmaður geti átt við það á meðan. Lásin hverfur þegar smellt hefur verið á Save eða Cancel.

Sé farið af síðunni án þess að smella á Save eða Cancel hverfur lásinn ekki.
Því er afar mikilvægt að notast aldrei við Back örina í sjálfum vafranum.

Til að taka efni úr lás þarf sá sem að var að vinna í því að opna það aftur og loka svo á réttan hátt með Save eða Cancel hnöppunum. Enginn annar notandi kemst inn í læst efni.

Yfirkerfisstjóri hefur einnig aðgang að sérstakri aðgerð til að aflæsa öllu læstu efni.

 

Almennt um myndir
Mikilvægt er að muna eftirfarandi þegar myndir eru settar inn:
a) Minnka upplausn eins og hægt er án þess að gæði tapist.
b) Vista hana á rökréttum stað í myndasafni. Búa til nýjar möppur ef þarf.

Eins og áður segir má breyta stærðum í Image Manager glugganum en best er að setja myndirnar inn í réttri stærð. Hitt getur haft áhrif á gæði myndarinnar.

Setja mynd í myndasafn
ATH! Myndin þarf að vera tilbúin á tölvunni þinni áður.

1. Farðu í kerfishlutann www.lén.is/administrator og skráðu þig inn:

2. Smelltu á Media Manager. Media Manager viðmótið birtist. Smellið á ­möppuna stories.

3. Finndu (eða búðu til) möppuna þar sem þú vilt staðsetja myndina.

4. Smelltu á Browse og veldu mynd úr skráasafninu.

5. Smelltu á Upload hnappinn.

6. Myndin birtist í skráasafninu á þeim stað sem þú valdir og hægt er að nota hana í vefsíðum.
Stærð myndarinnar í pixlum er sýnd niðri til hægri.
Smelltu á blýantinn til að birta slóðina (URL) að myndinni.
Smelltu á ruslatunnuna til að eyða myndinni.

 

Þegar texti er afritaður úr Word afritast einnig ýmsir Word kóðar sem eyðileggja útlit síðunnar. Til að komast hjá því að kóðarnir hafi áhrif þarf að gera eftirfarandi eftir að textinn hefur verið klipptur úr Word:

1. Skráðu þig inn í kerfið. (www.lén.is/administrator).

2. Á upphafssíðu er smellt á Add New Content. Þá kemur upp síða sem heitir Content Item:New.

3. Settu inn fyrirsögn í Title og undirfyrirsögn í Title alias ef það er notað í útlitinu.

4. Gerðu bendilinn virkan í textaboxinu og smelltu á Paste from Word ­táknið í efstu myndaröðinni. Nú opnast lítill gluggi.

5. Límdu textann inn í gluggann, Slaufa-V (CTRL-V á PC).

6. Smelltu á Insert.

 

 

1. Búðu til nýja valmynd sem vísar í allt efni atburðarins með því að velja Menu Manager undir Menu og smella á New.

2. Í Menu Name skrifar þú heiti valmyndarinnar sem birtist í haus valmyndar. Í Module Title skifar þú nafnið sem kerfið notar og birtist undir Site Module

3. Smelltu á Save.

4. Smelltu á Modules efst í valmyndinni og Site Modules.

5. Nú birtist listi og þú smellir á nafnið sem þú skrifaðir í Module Title.

6. Smelltu á Published til að birta valmyndina og veldu staðsetningu undir Position.

7. Smelltu á Save.

 

1. Í Menu gardínunni er valin sú valmynd sem við á, t.d. mainmenu.
(Leiðbeiningar hvernig búa á til nýja valmynd má lesa undir Ný valmynd).

2. Nú opnast Menu Manager viðmót. Efst í hægra horni er smellt á New.

3. Nú opnast New Menu Item viðmót og þarf nú að velja þá tegund sem við á.
Blog - Content Category á við þegar um er að ræða kvika (dynamic) síðu.
Link - Static Content
á við þegar um er að ræða sístæða (static) síðu.
Component á við þegar tengja á nýjan módúl.
Link - Url
á við þegar vísað er á aðra vefslóð.
Veldu það sem við á.

4. Nú opnast Add Menu Item viðmót. (Það er aðeins mismunandi eftir því hvað er valið hér að ofan hvernig Add Menu Item viðmótið lítur út). Í Name er skrifað heiti valmyndarflipans. Í Category er greinin (sem þegar hefur verið skrifuð) valin. Sé um undirflipa að ræða er flipinn þar sem þessi á að koma undir valinn í Parent Item. (Hafi Blog - Content Category verið valið er oft átt við # Leading, # Intro, Colums, og # Links stillingarnar undir Parameters).

7. Smelltu á Save.

 

 
Hugsa sér ehf. | Sími: 5522 557 | Leitaðu tilboða - Vönduð og góð þjónusta
free_002.jpg
Upphafssíða
Um Hugsa sér
Prentlausnir
Veflausnir
Vefþjónusta
Hafðu samband
Veftré